Skilmálar
Eftirfarandi skilmálar gilda um heimsókn þína á vefsíðuna og öll viðskipti þín á henni.
Upplýsingar um seljanda
Vefsíðan www.bdthjalfun.is (hér eftir nefnd bd þjálfun) er í eigu og rekin af Heildin sf. – kt. 570189-1159, Hrísmóum 7, 210 Garðabæ.
Almennt
Kaupandi verður að vera fjárráða til þess að geta keypt vöru frá bd þjálfun. Eftirfarandi skilmálar gilda um viðskipti seljanda og kaupanda og notkun á netversluninni bdthjalfun.is. Um þjónustuviðskipti gilda skilmálar sem skilgreindir eru í lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003. Í vefverslun bd þjálfun eru í boði stök netnámskeið og æfingaplön.
Réttur til að hætta við pantanir
bd þjálfun áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á ákveðin námskeið eða vörur fyrirvaralaust.
Efni á heimasíðu og námskeiðum | Höfundaréttur
bd þjálfun er höfundur alls efnis sem keypt er á síðunni bdthjalfun.is og er efnið einungis ætlað til einkanota kaupanda. Dreifing á efni í heild sinni eða að hluta til er með öllu óheimil nema með leyfi frá höfundi.
Verð
Öll verð í netversluninni er í íslenskum krónum án virðisaukaskatts. bd þjálfun áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Netnámskeið og önnur þjálfun fæst ekki endurgreidd.
Ábyrgðarskilmálar
Kaupandi skal kynna sér vel lýsingu á vöru og hvort viðkomandi æfingaplan henti miðað við heilsufarssögu og núverandi ástand. bd þjálfun ber ekki ábyrgð á meiðslum eða öðru sem kann að koma upp á meðan æfingu stendur. Kaupandi er á eigin ábyrgð við framkvæmd æfinga. Ef um meiðsli eða önnur veikindi er að ræða hvetjum við iðkanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en keypt er þjónustu hjá bd þjálfun.
Afhending vara og kostnaður
Öll netnámskeið og æfingaplön eru send í tölvupósti á það netfang sem gefið er upp við pöntun innan við sólarhring frá því að greiðsla berst.
Greiðslur
Hægt er að greiða með millifærslu á reikning Heildin sf.
Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd. Hægt er að greiða með öllum debit- og kreditkortum frá Visa og MasterCard.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Seljandi meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000. Vafrakökur eru notaðar til þess að greina umferð um vefinn.
Varnarþing
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Breytingar
bd þjálfun áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.